Hver myndi?

Hver myndi fæst í Nexus, A4, Spilavinum, Nettó og Heimkaup.

Hver vina þinna myndi æsa sig í rökræðum um Star Wars?

Hver í fjölskyldunni þinni myndi deila matnum sínum með gæludýri?

Hver myndi rífast við femínista á netinu?

Þetta eru spurningar sem spilarar reyna að svara í “Hver myndi?”, stórskemmtilegu nýju spili frá höfundi #Kommentakerfisins.

Í spilinu greiða spilarar atkvæði um hver þeirra sé líklegastur til að gera hitt og þetta. Spurningarnar eru léttar og skemmtilegar og henta 8 ára og eldri.